Hálfvitar!

Hvers konar andskotans hálfvitar hafa verið að stjórna þessu landi eiginlega?  Fjármálakerfið í rúst og nú kemur í ljós að Seðlabankinn gleymdi bara að setja 300 milljarða í mínusdálkinn þegar hann var að meta stöðu sína.  Úppsss...!

 

Ég legg til að við bara afsölum okkur fullveldi og göngumst á hendur norska kónginum... það er alveg augljóst að við eigum ekki fullveldi skilið þegar við leyfum stjórnvöldum og embættismönnum að rústa öllu sem forfeður okkar unnu fyrir með blóði, svita og tárum!

 

Ísland er orðið aðhlátursefni um allan heim... Íslendingar ættu að skammast sín fyrir að láta þessi helvítis fífl komast upp með að nauðga þjóðinni hvað eftir annað og nú liggur þjóðin eftir í sárum sínum nær dauða en lífi!


mbl.is Viðbúið að tjónið verði mikið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það ætti að friða rjúpuna og gefa skotleifi á þessa helvitis aumingja sem eru búnir að kollsteipa þjóðinni. Við Islendingar eigum rétt á að vita betur hvað fer framm á ollum þessum fundum og hvað þeir eru að ráðgera og það ætti að vera þjóðinn sem samþikkir þær ákvarðanir sem teknar verða svo við verðum ekki endanlega útskúffuð um allan heim,og það á að upplisa okkur betur frá þessum fuglum sem ennþá stjórna 0llu hérna . Svo fóru sumir af þessum sökudólgum sem eru búnir að gera okkur gjaldþrota þóð norður á land og flugu þaðan út meða allar sinar ferðatöskur ættu þeir ekki að vera í farbanni.

Holmfridur Karlsdottir (IP-tala skráð) 21.10.2008 kl. 23:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband