Vörugjöld - úreltur andskoti!

Maður er alveg að fá sig fullsaddann að búa hérna á Íslandi,  það er endalaust okrað á manni hvort sem það eru svokallaðir útrásarvíkingar eða stjórnvöld sem þykjast hafa gert einhverja skjaldborg utan um heimilin í landinu.  Ísland er orðið argasta miðstýringarhelvíti!

Á Íslandi er gefið út tímarit sem heitir "Frjáls verslun" og væntanlega trúa einhverjir því að það sé frjáls verslun á Íslandi og allir séu voða frjálsir.  Það er hinsvegar ekki rétt... réttnefnið á þessu tímariti ætti að vera "Miðstýrð verslun".

Nýjasta dæmið hjá mér er það að ég hef verið að leita mér að bassaboxi fyrir stúdíó sem ég er með og þar sem úrval af öllu sem snertir hljóð er lítið og mjög slakt að þá athugaði ég með að kaupa erlendis frá.  Auðvitað vildi ég vera viss um hvað ég þyrfti að borga í skatta og gjöld til ríkisins.

Útkoman var sú að ég þyrfti að borga samtals 68% ofan á vöruverðið... sem sagt ég á virkilega að borga ríkinu 68% fyrir að sitja á rassinum og gera ekki rassgat!

Eru Íslendingar algjörir aumingjar og láta bjóða sér hvað sem er?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband