Flytja stórnotendur á sérkerfi!!!

Þetta er með öllu ólíðandi að stóriðjan sé að valda almennum rafmagnsnotendum truflunum og skaða.  Fjölmörg raftæki sem heimili eru að nota eru viðkvæm fyrir miklum straumbreytingum og geta hreinlega skemmst og orðið ónýt eftir slíkt rafmagnssjokk.

Maður gerir nú þá kröfu að við almennir neytendur séum verndaðir fyrir stórnotendum sem geta valdið þvílíkum spennubreytingum á rafveitukerfinu að skaði hlýst af!

Það er alveg nóg að borga reikninginn af þessari stóriðjuvitleysu allri þótt maður lendi ekki líka í því að borga brúsann fyrir skemmd rafmagnstæki uppá tugi ef ekki hundruði þúsunda.

Lagið þetta strax!!!


mbl.is Víðtækar rafmagnstruflanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Að færa stórnotendurna yfir á annað kerfi, þýðir bara að rafmagnsreikningurinn þinn yrði hærri, þeir eru að niðurgreiða dreifikerfið okkar :)

jonni (IP-tala skráð) 9.9.2010 kl. 13:55

2 identicon

Annars held ég að það séu reglur um gæði afhents rafmagns, sem rafveitur þurfa að fylgja. þetta flökt er sennilega að brjóta þær reglur, en ég haf bara ekki hugmynd hver viðurlögin við svona reglubroti eru. Ef þau eru þá einhver.

jonni (IP-tala skráð) 9.9.2010 kl. 13:57

3 Smámynd: Tryggvi L. Skjaldarson

Án stóriðju væru rafmagnstruflanir trúlega mun algengari, ef það væri yfirhöfuð rafmagn að hafa.

Tryggvi L. Skjaldarson, 9.9.2010 kl. 14:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband