Vá! Til hamingju stelpur!

Þetta er alveg frábær árangur og alveg stórkostlegt að þær stóðu við stóru orðin sem þær gáfu í Kastljósi eða Ísland í dag um daginn.  Svona á að gera þetta! :)


mbl.is Gerpla Evrópumeistari í hópfimleikum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fölsk tölfræði!

Það vekur upp ýmsar spurningar þegar ráðherra segir að tölfræðilegar upplýsingar liggi fyrir þegar hann ætti að vita betur.  Því sú tölfræði sem stuðst er við á Íslandi í dag er sennilegast kolröng og vantar inn stóran hóp sem er enn falinn!  Hvaða hópur skyldi það nú vera?  Jú,  það eru piltar og karlar sem verða fyrir kynferðisofbeldi bæði af hálfu annarra karla en ekki síður af hálfu kvenfólks.

Kynferðisofbeldi gagnvart körlum er ennþá mjög falið vandamál og er athyglisvert að þótt að Stöð2  hafi verið með frétt um daginn um þessi mál að nákvæmlega engin umræða hefur átt sér stað um þessi mál eftir það.

Sumir vilja greinilega halda í þá "staðalímynd" að konur séu ætíð fórnarlömb og karlar gerendur!


mbl.is Skoðar meðferð kynferðisbrota
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættið að kvarta og hækkið launin!

Þetta er nú bara svona einfalt að fá fólk til starfa,  ef að fólk getur ekki lifað af laununum að þá fer það ekki að vinna slíka vinnu.
mbl.is Fólk fæst ekki í fiskvinnslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Greiðsluverkfall!

Eina leið skuldara til að fá fram réttlæti er algjört greiðsluverkfall á bæði hin ólöglegu lán sem og verðtryggðu lánin.

Niðurstaðan í hæstarétti er greinilega pöntuð af fjármála- og stjórnmálamafíunni á Íslandi!


mbl.is „Svona er bara lífsins gangur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flytja stórnotendur á sérkerfi!!!

Þetta er með öllu ólíðandi að stóriðjan sé að valda almennum rafmagnsnotendum truflunum og skaða.  Fjölmörg raftæki sem heimili eru að nota eru viðkvæm fyrir miklum straumbreytingum og geta hreinlega skemmst og orðið ónýt eftir slíkt rafmagnssjokk.

Maður gerir nú þá kröfu að við almennir neytendur séum verndaðir fyrir stórnotendum sem geta valdið þvílíkum spennubreytingum á rafveitukerfinu að skaði hlýst af!

Það er alveg nóg að borga reikninginn af þessari stóriðjuvitleysu allri þótt maður lendi ekki líka í því að borga brúsann fyrir skemmd rafmagnstæki uppá tugi ef ekki hundruði þúsunda.

Lagið þetta strax!!!


mbl.is Víðtækar rafmagnstruflanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vantar umferðaljós!

Ég skil ekki hvers vegna það eru ekki komin umferðaljós á þessum stað.
mbl.is Harður árekstur á Reykjanesbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ha?

Skil ekki,  var ekki önnur frétt sem sagði að þetta væri ólöglegt?
mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skjóta fyrst - spyrja svo?

Spurning hvort það hefði ekki verið réttara að þessir leikskólastarfsmenn hefðu gengið að manninum og spurt hvað hann væri að gera í stað þess að gera eitthvað lögreglumál úr þessu.

Á maður kannski á hættu að vera stimplaður sem glæpamaður ef maður mundar myndavélina,  hélt að við værum ekki eins hystorískt þjóðfélag eins og Bretland þar sem maður getur átt von á að vera handtekinn fyrir að taka ljósmyndir af kennileitum.


mbl.is Byggingarfulltrúi í bobba
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rasistar!

Það þarf ekki að segja meira um þessa fáránlega geðveiku hugdettu í Egyptalandi!
mbl.is Börn og eiginmenn ísraelskra kvenna svipt ríkisborgararétti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erlend frétt?

Hvers vegna er þessi frétt undir liðnum "erlendar fréttir"?  Jah,  nema svæðið í kringum álverið í Straumsvík flokkist sem erlend yfirráðasvæði.
mbl.is Bíllinn gjörónýtur eftir brunann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband